Kæru vinir, Nú hefur Ísaksskóli tekið í notkun nýjan og töluvert breyttan vef. Við gerð hans var haft að leiðarljósi að bæta þjónustu og gera vef skólans aðgengilegri fyrir alla sem að honum koma. Allt efni hefur meira og minna verið endurbætt og betur framsett ásam
Fyrsti skóladagurinn á nýju ári er mánudagurinn 6. janúar kl. 8:30. Föstudaginn 10. janúar syngjum við áramótasöngva í söngstund á sal. Þemadagar verða miðvikudaginn 29., fimmtudaginn 30. og föstudaginn 31. janúar.
Kæru vinir, við sendum ykkur hugheilar jólakvedjur með óskum um farsæld og frið á komandi ári. Kærar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Starfsfólk Skóla Ísaks Jónssonar
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 8 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.