Leikhópurinn Lotta

Heil og sæl,

Ísaksskóli fær hópafslátt á sýningu Leikhópsins Lottu “Ljóta andarungann” á túninu við hliðina á rafstöðvarhúsinu í Elliðárdalnum í Reykjavík þann, þann 31. maí klukkan 18.00.

Miðinn verður á einungis þúsund kall – 1000 kr! ? Venjulegt miðaverð er 2.300 krónur.

Leikritið er nýtt verk, samansuða af fimm þekktum ævintýrum;
Ljóta andarunganum,
Kiðlingunum sjö,
Prinsessunni á bauninni,
Öskubusku
og Héranum og skjaldbökunni.

Að vanda er sýningin splunkunýtt leikverk, með frumsaminni tónlist, söng, gleði og miklum húmor að hætti leikhópsins Lottu.

TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ – skráning hefst eftir helgi – vinsamlega takið daginn frá og smalið bekkjum og/eða fjölskyldum saman.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Foreldrafélag Ísaksskóla

Scroll to Top