Kæru vinir,
Nú hefur Ísaksskóli tekið í notkun nýjan og töluvert breyttan vef. Við gerð hans var haft að leiðarljósi að bæta þjónustu og gera vef skólans aðgengilegri fyrir alla sem að honum koma.
Allt efni hefur meira og minna verið endurbætt og betur framsett ásamt því að töluvert af nýju efni er komið á vefinn. Þess má einnig geta að nýi vefurinn aðlagar sig að snjalltækjum, s.s. símum og spjaldtölvum og það eitt og sér eykur aðgengi hans svo um munar.
Uppsetning og breytt framsetning gagna á vefnum var unnin í samstarfi við Tæknimiðlun ehf og það var Vala okkar sem hafði yfirumsjón með flutningnum.
Góðar stundir!