Komiði sæl kæru foreldrar,
Nú þegar dag er tekið að lengja má gleðjast yfir því og þeim tíðindum að samkomutakmörkunum hafi loks verið aflétt. Það var yndislegt að hlýða aftur á Söng á sal í morgun og vonandi fer nú lífið að færast í venjulegt far, enda þótt ófriðlegra sé í heiminum en um langt skeið.
Við vildum láta ykkur vita að foreldrafélagið tekur þátt í Öskudeginum ásamt skólanum í næstu viku með skemmtiatriðum og því að útvega nammi og fleiri glaðninga í tunnuna.
Jafnframt er áætlað að halda páskabíó í vikunni fyrir páskaleyfi og hvetjum við þá sem foreldra sem geta að aðstoða við vinninga svo allt heppnist sem best. Við munum kynna þetta betur þegar nær dregur.
Þá er aðalfundur foreldrafélagsins boðaður miðvikudaginn 6. apríl nk. Kl. 17 og um leið verður boðið upp á spennandi fræðsluerindi fyrir foreldra sem kynnt verður sérstaklega síðar. Við hvetjum þá sem áhuga hafa á að bjóða sig fram í stjórn foreldrafélagsins að gera það og láta okkur vita, en kosið er til tveggja ára og því ganga nokkrir úr stjórn nú eða eru ekki lengur með börn í skólanum.
Foreldrar eiga nú að vera búnir að fá hefðbundna valgreiðslu í heimabankann sinn sem fylgir félagsaðild, en félagsgjöld og fjáröflun okkar stendur undir skemmtunum sem börnunum er boðið upp á, t.d. velheppnaðri útiskemmtun sl. haust, jólasýningu og fleira í þeim dúr sem foreldrum gafst ekki kostur á að taka þátt í vegna samkomutakmarkana.
Okkur langar að lokum til að færa starfsfólki skólans sérstakar þakkir fyrir óeigingjarnt starf og eiginlega hetjulega framgöngu meðan á faraldrinum stóð. Foreldrafélagið hefur fært starfsfólki glaðning í þakklætisskyni og mun gera meira af því á næstunni, enda fyllsta ástæða til.
Kær kveðja, stjórn foreldrafélagsins