Popplestur

Kæru vinir,

Í dag lauk skemmtilega popplestrarátakinu okkar. Það hefur eflaust ekki farið fram hjá ykkur að börnin ykkar eru búin að lesa eins og vindurinn síðustu tvær vikur, bæði heimalestur og yndislestur. Við fögnuðum dugnaði nemenda með því að setja upp poppvélar og bjóða upp á popp og almenna gleði. Hægt er að skoða myndasafn tileinkað popplestrinum hér á vefnum okkar með því að smella hér

Áfram litlu lestarhestar!
Starfsfólk Ísaksskóla

 

Scroll to Top