90 ára afmælishátíð Ísaksskóla

Kæru foreldrar/forráðamenn, ættingjar og vinir

Í tilefni 90 ára afmælis skólans bjóðum við aðstandendum nemenda til veislu föstudaginn 15. apríl kl. 13-14.

Dagskráin fer fram í hátíðarsal skólans og að henni lokinni verðum gestum boðið að ganga um skólann og sjá afrakstur vinnu nemenda og þiggja veitingar.

Þennan morgun fellur hefðbundinn söngur á sal niður.

Vinsamlega leggið ekki bílunum þannig að umferð teppist næst skólanum. Til að allt gangi sem best fyrir sig bendum við á að hægt er að leggja á stóra stæðið hjá Kennaraháskólanum og ganga síðan á milli húsanna yfir til okkar. Skrefin verða aðeins fleiri en nágrannarnir verða sáttari við okkur.

Við hlökkum til að sjá ykkur,
starfsfólk Ísaksskóla

Sigríður Anna Guðjónsdóttir