Haustfundur 6, 7, 8 og 9 ára er fimmtudaginn 1. september kl. 17:30.
Sund verður einu sinni í viku hjá 6-9 ára bekkjum frá 6. september og fram í janúar/febrúar.
Samræmd próf verða í íslensku fimmtudaginn 29. september og í stærðfræði föstudaginn 30. september hjá 9 ára. Á meðan á samræmdu prófunum stendur fara þeir bekkir sem eru á sama gangi í skipulagðar vettvangsferðir báða dagana.
Með haustkveðjum,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir