Desember í Ísaksskóla

Foreldrafélagið stendur fyrir jólaferðum á Árbæjarsafn þrjá sunnudaga á aðventu, 4., 11. eða 18. desember – Afsláttarmiði fór heim í skólatöskunum á mánudag.

Kirkjuferð er miðvikudaginn 7. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því lagt er af stað frá skólanum og gengið til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn. 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli. Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hvern bekk skólans. Aðstandendur eru velkomnir í kirkjuna en taka sér sæti aftan við börnin í kirkjunni og á hliðarbekkjum.

Þeir foreldrar/forráðamenn sem vilja ekki að börnin þeirra fari í kirkjuna geta haft samband við Láru á skrifstofunni eða umsjónarkennarann. Allir verða komnir til baka í skólann um kl. 10.

Jólasveinahúfudagur verður föstudaginn 9. desember. Þá mega allir nemendur koma með húfuna í söng á sal.

Litlu jólin eru mánudaginn 19. desember í skólastofum. Þann dag er venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með smákökur og drykkjarföng í fernum (röradrykk) í aukanesti. Ekkert gos er leyfilegt.

Jólatrésskemmtanir eru þriðjudaginn 20. desember. Jólaböllin eru tvö. Hið fyrra frá kl. 13:00-14:30 (mæting kl. 12:45) og hið seinna frá kl. 15:00-16:30 (mæting kl. 14:45). Nemendur safnast saman í skólastofunum sínum og ganga svo með sínum kennara að trénu í salnum. Engin kennsla eða gæsla er þennan dag og því miður er ekkert pláss fyrir foreldra eða vini á þessum jólatrésskemmtunum.

Kl. 13:00 – 14:30

5 ára SG
5 ára IG
6 ára VAL
6 ára HGO
7 ára HÞ
8 ára Lilla
9 ára SÁS

Kl. 15:00-16:30

5 ára Sól
5 ára MBD
6 ára EÁK
7 ára HKJ
7 ára ÞEK
8 ára EBH
9 ára JHH

Sólbrekka verður opin miðvikudaginn 21., fimmtudaginn 22. og föstudaginn 23. desember kl. 8:30- 16:30 fyrir þau 5 ára börn sem ekki byrja strax í jólafríi.

Skólinn hefst á nýju ári miðvikudaginn 4. janúar 2017 kl. 8:30 samkvæmt stundaskrá.

Með aðventukveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Sigríður Anna Guðjónsdóttir

Scroll to Top