Minnum á foreldradaginn á morgun

Kæru foreldrar/forráðamenn.

Við minnum á foreldradaginn á morgun, þriðjudaginn 14. febrúar.

Við höfum lagt alla óskilamuni í tröppurnar í salnum og biðjum við ykkur að vera svo væn að kíkja yfir varninginn þar og athuga hvort eitthvað tilheyri ykkar barni/börnum. Þar er af nógu að taka.

Við vekjum ennfremur athygli á því að þennan dag er engin kennsla né starfsemi í Sunnuhlíð/Sólbrekku.

Með góðum kveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top