Kæru foreldrar/forráðamenn
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út viðvörun vegna slæmrar veðurspár fyrir morgundaginn, 21. febrúar.
Höfuðborgarsvæðið:
Suðaustan illviðri (Appelsínugult ástand)
21 feb. kl. 07:00 – 11:00
Gengur í suðaustan 20-28 m/s, hvassast í efri byggðum og á Kjalarnesi. Snjókoma í fyrstu, en síðan slydda og rigning. Gæti orðið blint og foktjón er líklegt. Líkur eru á að samgöngur innan borgarmarkanna fari úr skorðum á meðan veðrið gengur yfir.
Veður getur seinkað ferðum nemenda til skóla á morgun. Skólar eru opnir, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skóla, þetta á sérstaklega við í efribyggðum og þar sem börn þurfa að fara yfir opin svæði á leið sinni í skóla. Með yngri börn er hér átt við 12 ára og yngra.
Due to weather conditions tomorrow, disruptions in school services may be expected today. Schools are open but parents and guardians are asked to escort children younger than 12 years to school. This especially concerns children living in upper areas that need to cross open spaces on their way to school.
Mínar bestu kveðjur,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir