Kæru foreldrar/forráðamenn og vinir Ísaksskóla
Heimildarmyndin Ísaksskóli í 90 ár er komin inn á Vodafone leiguna. Hrefna Hallgrímsdóttir og Bragi Þór Hinriksson unnu að gerð myndarinnar í tæp tvö ár og hefur þeim tekist að fanga brot af sögu skólans frá upphafi til dagsins í dag. Myndin er í senn fræðandi og skemmtileg og lýsir afskaplega vel þeirri hugsjón sem hefur verið leiðarljós skólans allt frá upphafsdögum hans. Við vinnslu myndarinnar voru tekin fjölmörg viðtöl sem eru ómetanleg heimild um sögu Ísaksskóla.
Með kærum kveðjum,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir