Verkalýðsdagurinn er þriðjudaginn 1. maí og er almennur frídagur
Uppstigningadagur er fimmtudaginn 10. maí og er almennur frídagur.
Annar í hvítasunnu er mánudaginn 21. maí og er almennur frídagur.
Leikjadagur verður föstudaginn 25. maí. Farið verður á Miklatún og farið í leiki sem Matti og Jói íþróttakennarar skipuleggja.
Gönguferð – Með dags fyrirvara í síðustu skólaviku er farið í gönguferð. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 og komið til baka um hádegið. Nemendur koma með sparinesti og röradrykk að heiman í litlum bakpoka eða tösku. Ekki má koma með sælgæti eða gosdrykki. Allir þurfa að vera klæddir eftir veðri og muna að koma í góðum skóm.
Síðasti kennsludagur er fimmtudagurinn 7. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur. Skólaárinu lýkur með skólaslitum kl 13:30 og þá er foreldrum velkomið að koma og hlýða á tröppusöng. Að honum loknum fylgja börnin kennara sínum inn í skólastofu og kveðja þar. Engin frístund er að skólaslitum loknum
Sumarskólinn hefst mánudaginn 11. júní.
Með sumarkveðjum,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir