Kæru foreldrar/forráðamenn,
Mér hefur verið gert viðvart um neikvæð samskipti og umræðu nemenda á milli vegna tölvuleikja sem margir nemendur eru að spila.
Undanfarið er það leikurinn Fortnite, sem er bannaður börnum innan 12 ára, sem nemendur allt niður í 1. bekk virðast vera að spila. Sumir foreldrar/forráðamenn hafa leyft börnunum að spila leikinn og hefur það valdið spennu og togstreitu á milli nemenda í skólastarfinu og haft áhrif á kennslu og nám þeirra. Einnig hefur það valdið þeim foreldrum/forráðamönnum sem virða aldurstakmörkin vandræðum. Skólinn vill hvetja foreldra/forráðamenn til að sameinast um að virða aldurstakmörk tölvuleikja því margir af þessum vinsælu leikjum eru með „opna gátt“ út í heim þar sem hugsanlega er opið aðgengi að börnunum.
Með tilkomu snjalltækja og annarrar nýrrar tækni hefur skjátími lengst hjá börnum. Hætt er við að þessi aukna tækjanotkun geti haft áhrif á þroska og líðan barnanna. Mikilvægt er að börn fái nægan svefn og að ró sé í kringum svefntímann. Mælt er með því að börn hætti að horfa á skjái, hvort sem það eru símar, tölvur, sjónvarp eða annað allt að klukkustund áður en þau fara að sofa.
Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að fylgjast vel með þeim tíma sem börnin verja í tækjum og hvers konar efni þau hafa aðgengi að. Mikilvægt er að börnin fái fjölbreytta hreyfingu, efli samskiptahæfni sína og hafi tíma til að sinna náminu.
Á vef www.saft.is eru ýmsar upplýsingar sem tengjast öruggri netnotkun sem gagnlegt er að skoða.
Með samstarfskveðjum,
Bestu kveðjur,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Skólastjóri