Þorragleði verður föstudaginn 24. janúar. Þann dag mega allir koma í lopapeysu eða þjóðlegum klæðnaði. Í söng á sal verða þorralög sungin og eftir söngstund fá börnin að smakka þorramat sem Múlakaffi býður upp á líkt og síðastliðin ár og þökkum við þeim kærlega fyrir.
Kærar kveðjur,
starfsfólk Ísaksskóla