Hausfagnaður Foreldrafélags Ísaksskóla 2018

Heil og sæl kæru vinir og gleðilega rútínu!

Laugardaginn, 8. september, býður Foreldrafélag Ísaksskóla nemendum og fjölskyldum þeirra á haustfagnað á skólalóðinni á milli kl 10:30-12:30.

Í boði verða hoppukastalar, Sirkus Íslands, andlitsmálning, léttar veitingar fyrir börn og foreldra, ljúf tónlist og almenn skemmtilegheit.

Vinsamlega skráið barnið ykkar í meðfylgjandi hlekk svo hægt sé að áætla veitingar.

Ennfremur vantar okkur hjálparhendur fyrir, á meðan og í tiltekt – vinsamlega bætið við í skráningarskjalið ef þið getið létt okkur þessa samveru með nafni, tölvupóstfangi og símanúmeri.

Njótið síðsumarsins – hlökkum til að fagna saman.

Bestu kveðjur

Foreldrafélag Ísaksskóla
foreldrafelag@isaksskoli.is

Skráningarhlekkur:

https://goo.gl/forms/KANcVliCIv7ikKJM2

Scroll to Top