Gleðilegt ár og janúar í Ísaksskóla

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt gamalt og gott. Um leið og við rennum af krafti og full tilhlökkunar inn í nýtt ár leggjum við línurnar fyrir janúar í Ísaksskóla.

Skipulagsdagur verður fimmtudaginn 3. janúar. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag.

Fyrsti skóladagurinn á nýju ári er föstudagurinn 4. janúar kl. 8:30. Við munum ekki syngja á sal í morgunsárið.

Föstudaginn 11. janúar syngjum við áramótasöngva í söngstund á sal.

Þorragleði verður föstudaginn 25. janúar. Þann dag mega allir koma í lopapeysu eða þjóðlegum klæðnaði. Í söng á sal verða þorralög sungin og eftir söngstund fá börnin að smakka þorramat.

Þemadagar verða þriðjudaginn 22. og miðvikudaginn 23. janúar.

Mót hækkandi sól,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top