Febrúar í Ísaksskóla

Dagur stærðfræðinnar er 1. febrúar.

Spænsk menningarvika verður haldin 4.-8. febrúar.

Foreldradagur verður þriðjudaginn 12. febrúar. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennarar munu hafa samband við foreldra/forráðamenn og bjóða viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku.

Vetrarfrí er mánudaginn 25. febrúar og þriðjudaginn 26. febrúar. Athugið að þessa tvo daga er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð. Sólbrekka er opin fyrir þau 5 ára börn sem ekki taka vetrarfrí.

Hlýjar kveðjur,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top