Febrúar í Ísaksskóla

Dagur stærðfræðinnar er 7. febrúar.

Foreldradagur verður miðvikudaginn 12. febrúar. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennarar munu hafa samband við foreldra/forráðamenn og bjóða viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku.

Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 24., þriðjudaginn 25. og miðvikudaginn 26. febrúar. Þeir eru að jafnaði hefðbundnir skóladagar hjá okkur. Þó viljum við benda á að á:
bolludag mega börnin koma með rjómabollur í skólann í aukanesti.
sprengidag – saltkjöt og baunir, túkall.
öskudag mega börnin koma í búningum í skólann. Við viljum biðja ykkur um að geyma öll vopn heima. Kötturinn verður sleginn úr tunnunni strax um morguninn svo það er mikilvægt að koma tímanlega í skólann. Eftir skóla tekur frístundin við eins og aðra daga.

Vetrarfrí er föstudaginn 28. febrúar og mánudaginn 2. mars. Athugið að þessa tvo daga er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð. Sólbrekka er opin fyrir þau 5 ára börn sem ekki taka vetrarfrí.

Með góðum kveðjum,

Sigríður Anna Guðjónsdóttir

Scroll to Top