Kæru foreldrar/forráðamenn
Nú styttist í stóru stundina og fyrsti skóladagurinn að verða að veruleika. Nemendur eiga að fara í raðirnar sínar úti á skólalóð (eins og þær voru í vor) þar sem kennarinn tekur á móti þeim um leið og hringir inn kl. 8:30. Nýir nemendur finna kennarann sinn og sameinast bekknum sínum. Engir foreldrar/forráðamenn mega koma inn í skólann og við biðjum ykkur um að virða 2 metra regluna sem aldrei fyrr.
Starfsfólk og börn með kvef- eða flensueinkenni koma ekki í skóla- eða frístundastarf og leita eins og áður til heilsugæslunnar og/eða hringja í 1700.
Ég minni á upplýsingapóst frá okkur um skólabyrjun sem þið fenguð í síðustu viku þar sem ýmsar gagnlegar upplýsingar koma fram. Póstinn er einnig að finna a vefnum okkar með því að smella hér
Með skólakveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla