Kæru vinir,
Reikningagerð vegna skólaársins er nú hafin hjá okkur og hafa allir foreldrar/forráðamenn fengið september reikninginn í tölvupósti. Mikilvægt er að tölvupóstfang greiðanda sé rétt skráð hjá skólanum. Ef einhver telur sig ekki hafa fengið reikninginn er best að hafa samband við Láru skrifstofustjóra í síma 553 2590 eða lara@isaksskoli.is.
Stofnuð er bankakrafa vegna allra reikninga á kennitölu greiðanda með eindaga yfirleitt 10. hvers mánaðar. Ef 10. lendir á laugar- eða sunnudegi lendir eindaginn á mánudeginum. Einnig er mikilvægt fyrir greiðendur að skoða reikninga vel og ganga úr skugga um að þeir séu réttir.
Lítið hefur verið um vanskil og erum við hæst ánægð með þá ákvörðun foreldra/forráðamanna að setja reikninga vegna skólagöngu barnsins í forgang og greiða alltaf í síðasta lagi á eindaga.