Mars í Ísaksskóla

Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru 3., 4. og 5. mars. Þeir eru að jafnaði hefðbundnir skóladagar hjá okkur. Þó viljum við benda á að á:

Bolludag mega börnin koma með rjómabollur og röradrykk í skólann í aukanesti.
Sprengidag – saltkjöt og baunir, túkall
Öskudag mega börnin koma í búningum í skólann. Við viljum biðja ykkur um að geyma öll vopn heima. 
Þessi dagur er hefðbundinn fram yfir löngu frímínúturnar. Að þeim loknum tekur foreldrafélagið við og sér um skemmtiatriði á sal og í íþróttasal fram til kl.14:10.

Með ljúfum kveðjum,

Sigríður Anna Guðjónsdóttir    

Scroll to Top