Október í Ísaksskóla

Foreldradagur er fimmtudaginn 8. október. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Viðtalsfundir verða að þessu sinni rafrænir. Kennarar munu hafa samband við foreldra og bjóða viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku.

Skipulagsdagur verður föstudaginn 9. október. Athugið að þann dag er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð eða Sólbrekku.

Verkefnið útivinir verður í gangi 12.-16. október. Útivinir er verkefni þar sem nokkrir 8 og 9 ára nemendur standa fyrir útileikjum á skólalóðinni í frímínútum fyrir yngri nemendur undir handleiðslu kennara.

Vetrarfrí er fimmtudaginn 22., föstudaginn 23. og mánudaginn 26. október. Athugið að í vetrarfríinu er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð. Sólbrekka verður opin fyrir 5 ára börn sem ekki taka vetrarfrí.

Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október ár hvert. Við höldum upp á hann föstudaginn 30. október. Nemendur mega koma með bangsa (tuskudýr) sem passa í skólatöskuna og jafnframt vera með þá í söng á sal en ekki í frímínútum.

Vinavika verður 27.-30. október.

Með haustkveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top