Skólastarf frá og með morgundeginum, 19. nóvember

Kæru foreldrar/forráðamenn,

Mikið er gaman að segja ykkur frá því að starf barnanna mun aftur færast í eðlilegt horf frá og með morgundeginum, fimmtudeginum 19. nóvember. Morgungæsla og frístundin hefjast að nýju, sem og skólasund og íþróttir innandyra. Tómstundaframboðið fer líka í gang í frístundinni.

Því miður getum við enn ekki boðið ykkur inn í hús, en vonandi breytist það fljótlega. Talstöðvarkerfið okkar fer aftur í gang þegar þið sækið börnin í frístundina í lok dags.

Okkar ljúfustu kveðjum,
starfsmenn Ísaksskólla

Scroll to Top