Kæru foreldrar/forráðamenn,
Nú leggja allir nemendur skólans af stað í lestrarátak.
Af því tilefni hafa 9 ára nemendur unnið að gerð höfuðs fyrir lestrardreka með Ollu og Ösp í Smiðjunni. (sjá mynd hér að neðan)
Lestrarátakið:
Börnin fá heim klukku-renning í aukalestrarbókina með klukku á.
Barnið les heima (og stundum í skólanum) í aukalestri 10-20 mínútur.
Fyrir hverjar 5 mínútur litar barnið eina sneið á klukkunni (15 mínútur =3 sneiðar).
Þegar barnið hefur litað allar sneiðarnar (lesið í 60 mínútur) þá fær það að teikna hönd sína í skólanum og líma hana á lestrardrekann.
Vinsamlegast passið að klukku-renningurinn og aukalestrarbókin fylgi barninu alltaf í skólann á meðan átakinu stendur.
Gaman er að fara á bókasafn og velja sér aukalestrarbók. Foreldrar aðstoða þá barnið sitt við að velja bók við hæfi.
Vinsamlegast fylgist vel með hve lengi barnið les í aukalestri heima og skráið á klukkurenninginn og heimalestraheftið/Skjatta (9 ára).
Með von um góða þátttöku.
Ísaksskólakennarar