Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn,
Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar var haldinn í dag, þriðjudaginn 27. apríl. Skólanefnd næsta starfsárið er óbreytt þar sem Páll Harðarson fulltrúi foreldra og Jónas Þór Guðmundsson varamaður hans sitja áfram. Herdís Þórsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna var endurkjörin til tveggja ára og Lára Jóhannsdóttir varamaður hennar og Jóhann Örn Þórarinsson fulltrúi foreldra var endurkjörinn til tveggja ára og Árni Sigurðsson varamaður hans.
Fyrir hönd Ísaksskóla þakka ég skólanefnd fyrir vel unnin störf í þágu skólans og hlakka til áframhaldandi samvinnu og samstarfs. Það er ómetanlegt fyrir skólann að njóta krafta jafn frábærra einstaklinga.
Mínar bestu kveðjur,
Sigríður Anna