Kæru foreldrar forráðamenn.
Um leið og við óskum ykkur gleðilegra páska, þá viljum við láta ykkur vita að litla fallega fólkið ykkar fékk páskaegg frá foreldrafélaginu að gjöf í dag. Það voru glöð börn sem fengu hamborgara og franskar í hádeginu og lítið páskaegg í eftirrétt. „Besti dagur lífs míns“ heyrðist úr einni stofunni, það lýsir stemningunni og gleðinni sem fylgdi þessum glaðning.
Við sjáumst svo hress og kát þriðjudaginn 19. apríl þegar skólastarf hefst að nýju eftir páskaleyfið.
Páskakveðjur,
starfsfólk Ísaksskóla