Kæru foreldrar/forráðamenn,
Á föstudaginn 20. maí ætlum við að halda hvítan dag og biðjum við öll börn að klæðast einhverjum hvítum fötum að ofan.
Hvítt fyrir börn sem biðja um frið verður sungið á sal um morguninn, en laglínan kemur úr lagi Olgu Guðrúnar Árnadóttur, Myndin hennar Lísu.
Friðarkveðjur,
starfsfólk Ísaksskóla