Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn,
Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar var haldinn í gær, þriðjudaginn 25. apríl. Stjórn skólans næsta starfsárið er óbreytt frá því fyrra. Stjórnina skipa þau Páll Harðarson fulltrúi foreldra og Jónas Þór Guðmundsson varamaður hans, Herdís Þórsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna og Lára Jóhannesdóttir varamaður hennar og Árni Sigurðsson fulltrúi foreldra og Berglind Ósk Bárðardóttir varamaður hans.
Fyrir hönd Ísaksskóla þakka ég stjórninni fyrir frábær störf í þágu skólans og hlakka til áframhaldandi samvinnu og samstarfs. Það er ómetanlegt fyrir skólann að njóta krafta jafn frábærra einstaklinga.
Mínar bestu kveðjur,
Sigríður Anna