Nóvember í Ísaksskóla

Vinavika er hafin og endar föstudaginn 3. nóvember.

Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október ár hvert. Við höldum upp á hann föstudaginn 3. nóvember með bangsa- og náttfatadegi. Nemendur mega koma með bangsa (tuskudýr) sem passa í skólatöskuna og jafnframt vera með þá í söng á sal en ekki í frímínútum.

Dagur íslenskrar tungu er miðvikudaginn 16. nóvember. Við höldum upp á daginn og gerum okkur glaðan dag.

Skipulagsdagur verður mánudaginn 20. nóvember. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag.

Með fallegum vetrarkveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top