Þorrinn á bóndadaginn 24. janúar 2025

Þorrinn réði ríkjum í morgunsöngnum þar sem fallega fólkið söng meðal annars minni karla og kvenna með prýðis árangri. Krakkarnir fengu svo að smakka á hefðbundnum þorramat eftir sönginn. Matti hinn krullaði afhenti svo gullstígvélið fyrir besta árangur í stígvélakasti á Skólaleikunum sem haldnir voru þann 8. janúar sl. en það var enginn annar en Sigmundur Bessi í 8 ára DSI sem hlaut verðlaunin í ár.

Gleðilegan þorra og njótið helgarinnar.
Starfsfólk Ísaksskóla