Kæru foreldrar og forráðamenn,
Sund verður einu sinni í viku hjá 6-9 ára bekkjum frá 3. september og fram í mars/apríl. Þriggja vikna frí verður á sundinu í október og í mars eins og áður.
Samræmd próf verða í íslensku fimmtudaginn 25. september og í stærðfræði föstudaginn 26. september hjá 9 ára.
Á meðan á samræmdu prófunum stendur fara 8 ára bekkirnir sem eru á sama gangi í skipulagðar vettvangsferðir báða dagana.
Með skólakveðjum,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir