Starfsemi foreldrafélaga í grunnskólum er í stöðugri þróun.
Við flutning grunnskólans til sveitarfélaga færðist ákvarðanataka í skólamálum nær foreldrum sem undirstrikar þörf fyrir formlegan samstarfsvettvang þeirra.
Tilkoma foreldraráða við grunnskóla gefur tilefni til að endurskoða starfsemi foreldrafélaga og styrkja undirstöðuna enn frekar.
Vel rekin og virk foreldrafélög við hvern skóla eru tvímælalaust af hinu góða. Foreldrar hafa þar vettvang til að ræða saman um skólagöngu barnanna og hvað eina sem varðar uppeldi og menntun.
Til að ná sem bestum árangri er nauðsynlegt að þeir sem tengjast stjórnun og rekstri slíks félags velti fyrir sér markmiðum félagsins og hvernig sé hægt að skipuleggja starfið svo að þau markmið náist.
Foreldrar athugið!
Framlög ykkar eru nauðsynleg til að halda góðu starfi áfram.
Því förum við þess á leit við ykkur að hver fjölskylda leggi fram 4500.- kr.
Krafa mun birtast í heimabönkum ykkar á skólaárinu.