Foreldrafélagið bauð nemendum og starfsfólki skólans upp á ís eftir hádegismatinn í dag. Spenningurinn var mikill hjá litla og stóra fólkinu þegar þau röðuðu sér í fallegar raðir á skólalóðinni og fengu að launum ljúffengan ís í brauðformi.
Þökkum foreldrafélaginu heitt og innilega fyrir að bjóða okkar allra besta fólki upp á þessa dásamlegu stund í dag.
Kær kveðja.
Starfsfólk Ísaksskóla.



