Í morgun fóru nemendur Ísaksskóla á skólatónleika hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og nutu sannkallaðrar tónlistarveislu. Börnin komu brosandi aftur í skólann, rík af upplifun og fengu hádegismatinn í seinna fallinu.
Tónleikarnir voru hluti af samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listasafns Íslands þar sem þjóðsögur og þjóðararfurinn lifna við í tali, tónum og myndlist. Sögur af dýrum sem geta talað, kynjaverum, draugum, tröllum og álfum fylltu salinn og nemendur tóku þátt í fjöldasöng undir leiðsögn Ólafs Egils Egilssonar, sögumanns og kynnis tónleikanna.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Ingunn Korsgård Hagen hljómsveitarstjóri
Ólafur Egill Egilsson sögumaður og kynnir
Tónlist
Írskt þjóðlag Bíum, bíum bambaló
Þýskt þjóðlag: Stóð ég úti í tunglsljósi
Ungverskt þjóðlag: Óskasteinar
Árni Thorsteinsson: Kirkjuhvoll
Ingi T. Lárusson: Ó blessuð vertu sumarsól
Jón Ásgeirsson: Tröllaslagur
Jón Leifs: Dýravísur
Enskt þjóðlag: Kópurinn Kobbi
Nemendur og kennarar komu heim með fallegar minningar og innblástur úr heimi þjóðsagna og tónlistar.

