Verkefni hjá 9 ára árganginum var til sýnis á Barnamenningarhátíðinni 21. apríl 2026
Nemendur fengu áframhaldandi fræðslu um búsetuhætti á fyrri tímum og hvernig líf og starfshættir mótuðust við aðstæður þess tíma. Sérstök áhersla var lögð á búsetu við sjávarsíðuna og þá þætti sem höfðu áhrif á staðarval bænda og byggðamyndun í gegnum aldirnar.
Í tengslum við þessa fræðslu var nemendum skipt í hópa af handahófi og unnum að verkefni þar sem þau settu sig í hlutverk norskra landkönnuða sem leita að nýjum búsetustað. Þeir fundu eyju til búsetu og stofnuðu eigið samfélag. Nemendur ákváðu starfsskiptingu innan hópsins, s.s. veiðimenn, bændur og ræktendur, og skilgreindu styrkleika og hlutverk allra íbúa samfélagsins. Lögð var áhersla á mikilvægi fjölbreytileika, samheldni og ábyrgðar í samfélagsgerð.
Í verkefninu hönnuðu nemendur bát, eyju, eigin þjóðfána sem þau máluðu og bjuggu til úr endurunnu garni, teiknuðu fólk og skrifuðu texta sem lýsir fólkinu sem var um borð í bátnum og settist að á eyjunni þeirra. Þau skrifuðu bréf til ættingja sem urðu eftir í heimalandinu þeirra. Um er að ræða þverfaglegt verkefni þar sem unnið verður með námsefni úr íslensku, stærðfræði, samfélagsfræði, náttúrufræði og lífsleikni, upplýsingatækni ásamt öllum sérgreinum skólans.
Verkefnið endaði á formlegri sýningu á Sjóminjasafni Reykjavíkur á Barnamenningarhátíðinni, þar sem nemendur kynntu eigið samfélag og ferlið að baki vinnunni.
Markmið verkefnisins var að efla skilning nemenda á uppbyggingu samfélags, auk þess sem lögð var sérstök áhersla á samkennd, umburðarlyndi, þolinmæði, samvinnu og virðingu fyrir fjölbreytileika. Hér má sjá myndbandið frá Sjónminjasafninu.


