Kæru foreldrar/forráðamenn
Margir foreldrar/forráðamenn eru að velta því fyrir sér hvaða viðmið séu í kringum afmæli. Við höfum haldið okkur við þá stefnu að ef foreldrar eru að bjóða í afmæli þá er annað hvort öllum bekknum boðið eða bara stúlkum eða drengjum.
Þegar kemur að afmælisgjöfum er það að sjálfsögðu ykkar að ákveða og koma ykkur saman um gjafir. Við mælum hins vegar með því að gefa 500 krónur á barn. Þetta hefur gefist vel hjá mörgum bekkjum hér í skólanum. Oftar en ekki skreyta börnin umslögin sjálf og úr verður skemmtileg gjöf.
Með góðum kveðjum,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir