- This event has passed.
Kirkjuferð
2. desember 2015
Kirkjuferð er miðvikudaginn 2. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju.
Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því lagt er af stað frá skólanum og gengið til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn. 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli. Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hvern bekk skólans.
Aðstandendur eru velkomnir í kirkjuna en taka sér sæti aftan við börnin í kirkjunni og á hliðarbekkjum.
Þeir foreldrar/forráðamenn sem vilja ekki að börnin þeirra fari í kirkjuna geta haft samband við Láru á skrifstofunni eða umsjónarkennarann. Við munum hugsa vel um börnin hér í skólanum á meðan. Allir verða komnir til baka í skólann um kl. 10.