Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn,
Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar var haldinn í gær, þriðjudaginn 8. apríl.
Sturlaugur Þór Halldórsson hætti í skólanefnd sem fulltrúi foreldra eftir fjögurra ára setu í nefndinni og í hans stað var kjörinn Jóhann Örn Þórarinsson.
Áfram sitja í skólanefnd Páll Harðarson fulltrúi foreldra, Jónas Þór Guðmundsson varamaður hans, Erna Björk Hasler varamaður Jóhanns Arnar sem bauð sig fram aftur til tveggja ára, Jóhann Hilmar Hreiðarsson fulltrúi starfsmanna og Lára Jóhannesdóttir varamaður hans.
Fyrir hönd Ísaksskóla þakka ég Sturlaugi Þór fyrir vel unnin störf í þágu skólans og óska Jóhanni Erni og Ernu Björk til hamingju með kjörið.
Fundargerð ársfundarins ásamt ársreikningi 2013 munu liggja frammi á skrifstofunni minni næstu vikur til skoðunar.
Mínar bestu kveðjur,
Sigríður Anna