Haldið var í árlega kirkjuferð skólans í dag. Lagt var af stað fótgangandi á yndislega fallegum vetrarmorgni þar sem gengið var til Háteigskirkju, Þegar í kirkjuna var komið tók Séra María hátíðlega á móti okkur líkt og undanfarin ár. Börnin hlýddu á guðspjall í flutningi Þórkötlu og Árbjörns í 8 ára bekk ásamt því að Ísaksskóla kórinn söng fyrir okkur tvö lög.
Við áttum saman hátíðlega stund og fylltum kirkjuna í sameiningu af söng og gleði.