Næst komandi sunnudag er alþjóðlegi bangsadagurinn. Að því tilefni er börnunum boðið að koma með banga í skólann á morgun föstudag.
Alþjóðlegi bangsadagurinn er afmælisdagur Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Hann var mikil skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á veiðum hafi hann vorkennt litlum varnalausum bjarnahúni og sleppt honum. Washington Post birti skopmynd af þessum atviki.
Búðareigandi einn í Brooklyn í New York varð svo hrifin af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði í höfuðið á Teddy eða Teddy Bear. Nú er þessi leikfangabangsi orðin vinsæll leikfélagi barna um allan heim.
Kærar kveðjur og gleðilegan bangsadag,
starfsfólk Ísaksskóla