Apríl í Ísaksskóla

Kæru foreldrar/forráðamenn

Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar verður haldinn þriðjudaginn 12. apríl kl. 17:30 á sal skólans. Allir foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að mæta.

90 ára afmæli Skóla Ísaks Jónssonar. Í tilefni afmælisins bjóðum við aðstandendum nemenda til veislu föstudaginn 15. apríl kl. 13-14. Dagskráin fer fram í hátíðarsal skólans og að henni lokinni verðum gestum boðið að ganga um skólann og sjá afrakstur vinnu nemenda og þiggja veitingar. Nánari upplýsingar um dagskrána verða sendar þegar nær dregur.

Sumardagurinn fyrsti er fimmtudaginn 21. apríl og er almennur frídagur.

Skipulagsdagur verður föstudaginn 22. apríl.

Með vorkveðjum,

Sigríður Anna Guðjónsdóttir