Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn,
Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar var haldinn í gær, þriðjudaginn 26. apríl. Stjórn skólans næsta starfsárið skipa þau Páll Harðarson fulltrúi foreldra og Jónas Þór Guðmundsson varamaður hans, Herdís Þórsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna og Lára Jóhannesdóttir varamaður hennar og Árni Sigurðsson fulltrúi foreldra og Berglind Ósk Bárðardóttir varamaður hans.
Fyrir hönd Ísaksskóla þakka ég skólanefnd fyrir vel unnin störf í þágu skólans og hlakka til áframhaldandi samvinnu og samstarfs. Ég býð Berglindi Ósk velkomna í hópinn en hún er sú eina sem ekki hefur verið í hópnum áður. Það er ómetanlegt fyrir skólann að njóta krafta jafn frábærra einstaklinga.
Mínar bestu kveðjur,
Sigríður Anna