Bleikur dagur

Kæru foreldrar/forráðamenn.

Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Krabbameinsfélag Íslands biður alla landsmenn um að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 13. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag. Með því sýnum við samstöðu í baráttunni.

Okkur langar því að hvetja nemendur og starfsfólk Ísaksskóla til að koma í einhverju bleiku í skólann föstudaginn 13. október.

Kær kveðja,
starfsfólk Ísaksskóla.

Scroll to Top