Bræðurnir bolludagur, sprengidagur og öskudagur og fleira skemmtilegt

Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 27., þriðjudaginn 28. febrúar og miðvikudaginn 1. mars. Þeir eru að jafnaði hefðbundnir skóladagar hjá okkur. Þó viljum við benda á að á:

bolludag mega börnin koma með rjómabollur í skólann í aukanesti.
sprengidag – saltkjöt og baunir, túkall.
öskudag mega börnin koma í búningum í skólann. Við viljum biðja ykkur um að geyma öll vopn heima. Þessi dagur er hefðbundinn fram yfir löngu frímínúturnar. Að þeim loknum tekur foreldrafélagið við og sér um skemmtiatriði á sal og í íþróttasal fram til kl.14:10. Frístundin tekur síðan við að dagskrá lokinni eins og alla aðra daga.

Með sól í sinni,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top