Foreldrafélagið stendur fyrir jólaferðum á Árbæjarsafn þrjá sunnudaga í desember, 8., 15. eða 22. desember – nemendur fá afsláttarmiða heim í skólatöskunni á mánudaginn (2. desember).
Kirkjuferð er miðvikudaginn 4. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því lagt er af stað frá skólanum og gengið til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn. 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli. Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hvern bekk skólans. Aðstandendur eru velkomnir í kirkjuna en taka sér sæti aftan við börnin í kirkjunni og á hliðarbekkjum.
Jólasveinahúfudagur verður föstudaginn 13. desember. Þá mega allir krakkar koma með húfuna í söng á sal.
Litlu jólin eru fimmtudaginn 19. desember í skólastofum. Þann dag er venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með smákökur og drykkjarföng í fernum (röradrykk) í aukanesti. Ekkert gos er leyfilegt.
Jólatrésskemmtanir eru föstudaginn 20. desember. Jólaböllin eru tvö. Hið fyrra frá kl. 14:00-15:30 (mæting kl. 13:45) og hið seinna frá kl. 16:00-17:30 (mæting kl. 15:45). Nemendur safnast saman í skólastofunum sínum og ganga svo með kennara sínum að trénu í salnum. Engin kennsla eða gæsla er þennan dag og því miður er ekkert pláss fyrir foreldra eða vini á þessum jólatrésskemmtunum.