Foreldrafélagið stendur fyrir jólaferðum á Árbæjarsafn þrjá sunnudaga í desember, 7., 14. eða 21. desember – nemendur fá afsláttarmiða heim í skólatöskunni í dag.
Kirkjuferð er miðvikudaginn 3. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því lagt er af stað frá skólanum og gengið til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn. 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli. Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hvern bekk skólans. Aðstandendur eru velkomnir í kirkjuna en taka sér sæti aftan við börnin í kirkjunni og á hliðarbekkjum.
Jólasveinahúfudagur verður föstudaginn 12. desember. Þá mega allir krakkar koma með húfuna í söng á sal.
Litlu jólin eru fimmtudaginn 18. desember í skólastofum. Þann dag er venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með smákökur og drykkjarföng í fernum (röradrykk) í aukanesti. Ekkert gos er leyfilegt.
Jólatrésskemmtanir eru föstudaginn 19. desember. Jólaböllin eru tvö. Hið fyrra frá kl. 14:00-15:30 (mæting kl. 13:45) og hið seinna frá kl. 16:00-17:30 (mæting kl. 15:45). Nemendur safnast saman í skólastofunum sínum og ganga svo með kennara sínum að trénu í salnum. Engin kennsla eða gæsla er þennan dag og því miður er ekkert pláss fyrir foreldra eða vini á þessum jólatrésskemmtunum.
Kl. 14:00 – 15:30
5 ára ALH
5 ára HÞ
6 ára SÁS
6 ára Lilla
7 ára IG
8 ára Sól
9 ára MM
Kl. 16:00 – 17:30
5 ára HKJ
5 ára Þóra
6 ára EBH
7 ára VLA
8 ára BÞ
9 ára MBD
Skólinn hefst á nýju ári mánudaginn 5. janúar 2015 kl. 8:30 samkvæmt stundaskrá.
Með góðum kveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla