Dýrðardagur í Ísaksskóla

Kæru foreldrar/forráðamenn.

Lífið lék svo sannarlega við okkur í dag þegar leikjadagurinn okkar var haldinn á Klambratúni. Lítil andlit ljómuðu og nýjar freknur mynduðust á mörgum sólkysstum andlitum. Foreldrafélagið sá svo um að næra nemendur okkar með pylsum og góðgæti í hádeginu og vakti það mikla lukku.

Þökkum foreldrafélaginu hjartanlega fyrir framlag sitt í dag, það er ómetanlegt að hafa svona öflugan foreldrahóp með okkur í liði.

Njótið helgarinnar,
starfsmenn Ísaksskóla

Scroll to Top