Foreldrafélagið þakkar fyrir veturinn

Kæru Ísaksskólavinir

Við þökkum kærlega fyrir veturinn sem er að líða.

Meðal þess sem Foreldrafélagið tók sér fyrir hendur sl vetur:

– aðalfundur + fræðsla um kvíða frá Kvíðamiðstöðinni
– afsláttarmiðar á jólasýningu Árbæjarsafns
– jólaleiksýning
– öskudagurinn + Einar Mikael töframaður
– páskabingó

Næsta haust stefnum við á að taka vel á móti nemendum með haustfagnaði einhvern laugardaginn snemma í september. Svipað form og vorhátíðin var hér áður fyrr. Ef foreldrar luma á góðum tillögum má gjarnan koma þeim til foreldrafélagsins í gegnum formanninn: siggahrund@gmail.com.

Njótið sumarsins – sjáumst heil í haust

Foreldrafélag Ísaksskóla

Scroll to Top