Orðsending frá stjórn Foreldrafélags Ísaksskóla varðandi gjöf til skólans og breytingar á fyrirkomulagi páskabingósins á næsta ári.
Kæru foreldrar og forráðamenn.
Ákveðið hefur verið í nánu samráði við Sigríði skólastjóra að gjöf foreldrafélagsins í ár (2015) verði þrír skjávarpar til kennslu í 8 og 9 ára bekkjum.
Stjórn foreldrafélagsins vill nota tækifærið og þakka öllum fyrir aðstoðina sem þeir veittu foreldrafélaginu á páskabingóinu, bæði í tengslum við veitingasöluna og sjálft bingóið. Einnig viljum við þakka þeim foreldrum og fyrirtækjum, sem aðstoðuðu með að útvega vinninga fyrir bingóið. Sérstakar þakkir fær Ölgerðin fyrir að styrkja foreldrafélagið (annað árið í röð) með því að gefa okkur djús bæði fyrir páskabingóið og vorhátíðina (sem í ár var færð yfir á leikjadaginn 15.maí). Bestu þakkir til allra sem lögðu hönd á plóg með beinum eða óbeinum hætti.
Að lokum viljum við greina frá að breyting verður gerð á páskabingóinu á næsta skólaári (2015-2016). Fyrri daginn verða 5 og 6 ára bekkirnir saman í klukkustund, og engin veitingarsala verður þann daginn. Seinni daginn verða 7, 8 og 9 ára bekkirnir saman í um 2 klukkustundir eins og hefur verið og veitingarsala verður í boði þann daginn.
Þessi breyting er gerð þar sem yngri krakkarnir hafa ekki eins mikið úthald og þau eldri fyrir páskabingói með veitingahléi. Við viljum því prófa að breyta aðeins fyrirkomulaginu á næsta ári og vonum að það mælist vel fyrir.
Með kveðju,
f.h. stjórnar foreldrafélags Ísaksskóla
Borghildur Magnúsdóttir