Kæru vinir,
Senn líður að aðventu – að venju býður Foreldrafélagið afsláttarkjör á aðventudaga Árbæjarsafns – um er að ræða 9. des og 16. des að þessu sinni. Miðar koma í tösku barna þegar líður að mánaðarmótum nóv/des.
Foreldrafélagið býður einnig upp á leiksýningu fyrir börnin inni á sal, sú sýning verður 10. des – sýnd verður Pönnukakan hennar Grýlu, brúðuleikhús með Bernd Ogrodnik.
Að lokum minnum við á greiðslu félagsgjalda – kröfurnar eru komnar inn í heimabanka foreldra sem valkröfur og væri gott að fá greiðslur til að geta staðið undir viðburðum á nýju ári.
Njótið komandi daga,
Foreldrafélag Ísaksskóla
foreldrafelag@isaksskoli.is